Nýr Hleðslugarður Orku náttúrunnar hefur opnað á Glerártorgi

Mynd fengin af vef : www.on.is
Mynd fengin af vef : www.on.is

Á stöðvunum er góður upplýsingaskjár sem gerir alla upplifun frábæra og hægt er að velja leiðbeiningar á íslensku sem og öðrum tungumálum.
Í Hleðslugarðinum var aðgengi fyrir öll haft í algeru fyrirrúmi.

 „Við hjá Orku náttúrunnar erum einstaklega stolt af nýja Hleðslugarðinum á Glerártorgi sem og þeirri vegferð sem við erum á í því að stækka hleðslunet ON og leggja okkar af mörkum til orkuskiptanna. Hleðslugarðurinn er hluti af 10 ára afmælisuppbyggingu ON en sambærilegur Hleðslugarður með aukinni áherslu á fjölskylduvænt umhverfi opnaði nýverið í Öskjuhlíð í Reykjavík og annar slíkur opnar á næstu vikum við Digranesgötu í Borgarnesi. Viðskiptavinir ON eiga því von á reglulegum fréttum af opnun hleðslustöðva á nýjum staðsetningum sem eru fjölskylduvænni, þægilegri og með fleiri tengjum til að lágmarka bið,” segir Árni Hrannar Haraldsson, framkvæmdastjóri Orku náttúrunnar.

Lesa má alla tilkynninguna inn á heimasíðu Orku náttúrunnar: Nýr Hleðslugarður Orku náttúrunnar hefur opnað á Glerártorgi | on.is