Fjölbreytt upplifun í Iðunni mathöll

Myndir: Pizza Popolare, Fuego Taqueria, La Cusine.
Myndir: Pizza Popolare, Fuego Taqueria, La Cusine.

Við erum komnir með öflugan og frambærilegan hóp fagmanna til að opna veitingastaðina í Iðunni mathöll. Um er að ræða sex rekstraraðila sem leggja sitt af mörkum til þess að mæta þörfum og löngunum bæjarbúa, eftir bestu getu,“ segja þeir Guðmundur Pétursson og Aron Lárusson, rekstraraðilar mathallarinnar.

 

 Búið er að ganga frá samningum við alla, framkvæmdir við húsnæðið er á lokametrunum og er stefnt að því að allt verði klárt fyrir opnun í september. „Markmiðið er ađ koma inn með skemmtilega og spennandi nýjung í veitingaflóruna fyrir norðan, þar sem „matur, drykkur, líf og fjör“ á kannski best við,” segja þeir Guðmundur og Aron.

Franskt bistro, sushi, smörrebröd og fleira

Eftirtaldir staðir verða í Iðunni mathöllinni: La Cuisine, sem er franskt bistro, Fuego Taqueria, sem býður upp á mexíkanskan mat, Retro Chicken, sem verður með kjúkling og hamborgara á sínum matseðli og Pizza Popolare, sem eins og nafnið gefur til kynna býður upp á pitsur. Þá verður einnig sushistaður í mathöllinni sem enn hefur ekki fengið nafn sem og kaffihús og bar sem líka er enn nafnlaus. Sá staður mun selja kaffi, kökur og smörrebröd á daginn og drykki á kvöldin. Það er því ljóst að úrvalið í mathöllinni verður fjölbreytt og ættu því allir að geta fundið þar eitthvað við sitt hæfi bæði í mat og drykk.

Lesa má allt viðtalið á akureyri.net: Fjölbreytt upplifun í Iðunni Mathöll | akureyri.net