Tískuvöruverslunin Companys Akureyri

Ester verslunarstjóri í Companys á Akureyri
Ester verslunarstjóri í Companys á Akureyri

Tískuvöruverslunin Companys opnaði nýlega á Glerártorgi. Merkjavörur verslunarinnar hafa fengið góðar viðtökur hjá heimamönnum en þá ekki síður sófinn sem stendur í miðri verslun.

„Sófinn hefur alveg slegið í gegn og svo erum við líka með kaffivél. Við erum dugleg að bjóða herramönnunum sem koma hingað inn með konunum sínum að tylla sér í sófann og fá sér kaffi. Þeir sitja hér alsælir með kaffibollann og slaka á meðan konurnar skoða og máta í friði,“ segir Ester Óskarsdóttir, verslunarstjóri Companys á Akureyri.

Gæði og klassi

Companys er í eigu NTC ehf. sem hefur í meira en 45 ár verið leiðandi í innflutningi, framleiðslu og sölu á tískufatnaði á Íslandi. Þetta er þeirra fyrsta verslun á Akureyri en fyrir rekur NTC Companys verslun í Reykjavík. Þegar Ester er spurð að því hvort það sé ekki að bera í bakkafullan lækinn að enn ein tískuvöruverslunin opni á Glerártorgi segir hún sérstöðu verslunarinnar vera tölvuverða. Margir hafi verið spenntir að fá hana til Akureyrar því að sögn Esterar selji verslunin gæðavörur frá góðum merkjum, vörur sem hafi ekki áður verið fáanlegar á Akureyri, merki eins og Part Two, InWear, Neo noir, Matinique, Day et og ByMalene Birger.

„Við höfum fengið mjög góðar viðtökur, sérstaklega frá konum á aldrinum 40-60 ára. Margar þeirra þekkja þessar vörur vel og versla alltaf í Companys versluninni fyrir sunnan,“ segir Ester. 

Lesa má allt viðtalið við Ester inn á akureyri.net: Hvíti sófinn slær í gegn hjá Companys | akureyri.net